Um listamanninn

Mynd- og leirlistakonan Guðrún Ingólfsdóttir (gingó) fæddist þann 28.03.1958 á Höfn í Hornafirði.
Þann 19. maí 2007 opnaði hún fyrstu málverkasýningu sína á Kaffi-Horninu á Hornafirði. Þar sýndi  hún 95 akrýlmálverk, öll máluð á árinu 2007.

Auk þess hafa verk hennar hangið uppi í Pakkhúsinu á Höfn.
Guðrún er betur þekkt sem frjálsíþróttakona en hún á Íslandsmet í  kringlukasti kvenna og átti á tímabili líka Íslandsmet í kúluvarpi og var um árabil í A- landsliði Íslendinga og var í fyrsta íslenska kvennalandsliðinu í frjálsum íþróttum 1972.
Guðrún er stúdent frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu.
Veturinn 2007-2008 stundaði hún nám í Iðnskólanum í Reykjavík á almennri hönnunarbraut. Einnig nam hún við Myndlistaskólann í Reykjavík á keramikkjörsviði (málun 1 og rennslu). Þá hefur hún einnig lært silfursmíði.   
Listamannsnafnið gingó er tekið úr upphafsstöfum í nafni hennar.